Tækifæri til uppbyggingar á Vesturlandi með Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
Í úthlutun ársins verður sérstök áhersla lögð á verkefni sem stuðla að uppbyggingu á minna sóttum svæðum og lengingu ferðatímabilsins. Sú áhersla getur skapað fjölmörg tækifæri fyrir Vesturland, þar sem víða er að finna áhugaverða áfangastaði utan hefðbundins háannatíma, auk svæða með möguleika á frekari þróun ferðamennsku.
Ytri-Tunga úthlutað styrk 2023 og 2024
Drápuhlíðarfjall úthlutað styrk árið 2022
Sjóðurinn styrkir meðal annars framkvæmdir sem auka öryggi ferðamanna, stuðla að náttúruvernd og bæta aðstöðu á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum. Einnig er hægt að sækja um stuðning við undirbúnings- og hönnunarvinnu sem nauðsynleg er fyrir framtíðaruppbyggingu.
Á Vesturlandi hafa á undanförnum árum verið unnin fjölmörg mikilvæg verkefni sem bæta upplifun gesta og styrkja innviði ferðaþjónustunnar. Með nýrri úthlutun gefst tækifæri til að halda þeirri uppbyggingu áfram, hvort sem um er að ræða vinsæla áfangastaði eða svæði sem hafa burði til að dreifa umferð ferðamanna betur um landshlutann og yfir stærri hluta ársins.
Glymur úthlutað styrk frá 2022
Gönguleið á Hafnarfjall úthlutað styrk árið 2022
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins vel, þar sem gæði og áhrif verkefna vega þungt í mati á umsóknum. Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum island.is áður en umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar um sjóðinn, umsóknarskilyrði og gæðamat verkefna má finna á vef Ferðamálastofu.