Uppbyggilegt samtal um ferðaþjónustu í Hvalfirði
Sveitarstjórn og Menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar höfðu fjallað um vöxt og þróun ferðaþjónustunnar á fundum sínum fyrr í sumar. Í framhaldinu var samþykkt að sveitarfélagið hefði frumkvæði að því að kalla saman fulltrúa ferðaþjónustunnar með það að markmiði að efla samtal og samráð og skapa vettvang fyrir sameiginlega framtíðarsýn um ferðaþjónustu í sveitarfélaginu, líkt og fram kemur í fundargerðum.
Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri, stýrði fundinum.
Fulltrúar Umhverfis- og skipulagsdeildar Hvalfjarðarsveitar kynntu framkvæmdir við Glym í Botnsá sem unnar hafa verið með stuðningi frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Þá kynntu Hafþór Ingi Gunnarsson, verkefnastjóri miðlunar og markaðsmála hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, og Kristján Guðmundsson, verkefnastjóri á áfangastaða- og markaðssviði, starfsemi Markaðsstofu Vesturlands, samstarfsaðild, upplýsingakort Vesturlands(borðkort) auk fleiri verkefna sem tengjast þróun og kynningu á ferðaþjónustu á svæðinu.
Að loknum kynningum gafst fundargestum tækifæri til að ræða saman, skiptast á hugmyndum og sjónarmiðum og eiga gott og uppbyggilegt samtal um tækifæri og áskoranir í ferðaþjónustu í Hvalfjarðarsveit.
Fundurinn var góður vettvangur til að efla tengsl milli þeirra sem starfa að ferðaþjónustu í sveitarfélaginu og leggja grunn að áframhaldandi samtali og samráði um uppbyggingu greinarinnar til framtíðar.