Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Versti ljósmyndarinn leggur land undir fót á Íslandi

Í apríl 2026 bauð Icelandair fólki um allan heim að tilnefna versta ljósmyndarann sem það þekkti – eða sjálft sig. Viðbrögðin fóru fram úr öllum væntingum: 127.642 umsóknir bárust ásamt ótrúlegu safni af vægast sagt misheppnuðum ljósmyndum. Eftir meira en 2.000 klukkustundir af yfirferð umsókna og viðtala stóð einn sigurvegari uppi: Blanche Montemard frá París.

Nú er komið að stóru prófrauninni. Blanche leggur af stað í hringferð um Ísland þar sem ljósmyndahæfileikar hennar – eða skortur á þeim – verða settir á fullt próf.

Af hverju? Vegna þess að við trúum því að jafnvel versti ljósmyndari í heimi geti tekið stórkostlegar myndir á Íslandi.

Blanche ferðast nú um Ísland og heimsækir nokkra af stórbrotnustu og myndrænustu áfangastöðum landsins. Frá fossum og svörtum sandströndum til tignarlegra fjalla og jökullóna reynir hún fyrir sér með myndavélina á einum fallegasta leikvangi náttúrunnar.

Mun íslensk náttúra sjá alfarið um að skapa frábærar myndir? Eða tekst Blanche einhvern veginn að rugla jafnvel fallegasta landslag heims?

Það er aðeins ein leið til að komast að því.

Fylgstu með ævintýri Blanche um Ísland, eina skemmtilega ófullkomna ljósmynd í einu. Á leiðinni færðu að kynnast bæði þekktum perlum og minna þekktum stöðum – og sannreynir kannski sjálf(ur) að á Íslandi er nánast ómögulegt að taka slæma mynd.