Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Vertu með í samtalinu um markaðsstarf ferðaþjónustunnar

Íslandsstofa býður fyrirtækjum í ferðaþjónustu til fjarrýnifundar um markaðsstarf ferðaþjónustunnar og verkefnið Ferðaþjónusta til framtíðar, mánudaginn 28. september kl. 13:00–14:00.

Fundurinn er haldinn í framhaldi af rýnifundi í Reykjavík fyrr í mánuðinum og er einkum ætlaður fyrirtækjum sem ekki höfðu tök á að mæta þar eða eru staðsett utan höfuðborgarsvæðisins. Farið verður yfir sambærilegt efni og stöðuna eins og hún er í dag.

Fundurinn fer fram á Teams svo fyrirtæki um allt land hafi jafnt tækifæri til að kynna sér verkefnin og áherslur komandi árs.

Á dagskrá verður meðal annars:

  • Staða og horfur á helstu mörkuðum og markaðsverkefnið Ferðaþjónusta til framtíðar
  • Hvernig fyrirtæki geta nýtt markaðsstarfið og markaðsgögn í eigin sölu- og markaðsstarfi
  • Viðskiptatengsl, ferðasýningar og vinnustofur, ásamt drögum að B2B-verkáætlun næsta árs

Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðssamskipta, og Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, forstöðumaður Útflutnings- og fjárfestingarsviðs, fara yfir efnið.

Fundurinn er opinn öllum fyrirtækjum í ferðaþjónustu.

Skráning fer fram hér