Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Vesturland áfram meðal mest heimsóttu landshluta landsins

Ný samantekt Ferðamálastofu, Ferðaþjónusta í tölum – sumar 2026, sýnir að ferðamannasumarið 2026 var það næstfjölmennasta frá upphafi mælinga þrátt fyrir lítilsháttar fækkun erlendra ferðamanna milli ára. Alls voru um 830 þúsund brottfarir erlendra ferðamanna skráðar um Keflavíkurflugvöll yfir sumarmánuðina júní til ágúst, sem er 2,3% fækkun frá sumrinu 2025.

Vesturland hélt sterkri stöðu meðal áfangastaða ferðamanna en samkvæmt rannsókn Ferðamálastofu heimsóttu 62% erlendra ferðamanna landshlutann sumarið 2026. Til samanburðar heimsóttu 91% höfuðborgarsvæðið, 81% Suðurland og 76% Reykjanes.

Þrátt fyrir fækkun ferðamanna náði gistimarkaðurinn nýjum hæðum. Gistinætur á skráðum gististöðum voru alls um 4,4 milljónir sumarið 2026, sem er 3,1% aukning frá fyrra ári og mesti fjöldi gistinótta sem mælst hefur yfir sumarmánuði. Erlendir ferðamenn stóðu undir 83,1% allra gistinótta.

Á hótelum landsins voru um 1,8 milljónir gistinótta skráðar yfir sumarið. Þótt þeim hafi fækkað lítillega frá fyrra ári var það engu að síður næsthæsta tala sem mælst hefur.

Nýting hótelherbergja var áfram góð á Vesturlandi og Vestfjörðum. Í júlí og ágúst mældist nýtingin á bilinu 79,2% til 83,1%, sem endurspeglar áframhaldandi eftirspurn eftir gistingu á svæðinu yfir háannatímann.

Samkvæmt samantektinni komu langflestir ferðamenn til Íslands í fríi og dvöldu að meðaltali í 7,7 nætur. Bandaríkjamenn voru fjölmennasti hópur erlendra gesta, en einnig varð fjölgun meðal ferðamanna frá Kanada, Bretlandi og Þýskalandi.

Niðurstöðurnar benda til þess að Vesturland hafi haldið sterkri stöðu á íslenskum ferðamarkaði sumarið 2026 og verið meðal þeirra landshluta sem stærstur hluti erlendra ferðamanna heimsótti á ferð sinni um landið.

Hægt er nálgast samantekt á heimasíðu Ferðamálastofu.