Vesturland heldur sterkri stöðu sem áfangastaður ferðamanna
Vesturland heldur áfram að vera einn af vinsælustu landshlutum landsins. Nær helmingur allra erlendra ferðamanna (48%) heimsótti svæðið á tímabilinu og 30% gistu á Vesturlandi. Þessar tölur undirstrika mikilvægi landshlutans sem áfangastaðar og sýna að sífellt fleiri velja að verja hluta Íslandsferðar sinnar á Vesturlandi.
Ferðaþjónustan á Vesturlandi fylgir að vanda árstíðasveiflum, þar sem mest eftirspurn er yfir sumarmánuðina. Herbergjanýting á hótelum er þá mjög góð og endurspeglar vinsældir svæðisins meðal innlendra sem erlendra gesta.
Bandaríkjamenn eru áfram fjölmennasti hópur erlendra ferðamanna á Íslandi, en jafnframt hefur ferðamönnum frá mörgum öðrum mörkuðum fjölgað, meðal annars frá Kína, Frakklandi, Ítalíu og Danmörku. Þessi þróun skapar spennandi tækifæri fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á Vesturlandi til að höfða til sífellt fjölbreyttari hóps gesta.
Vesturland býður upp á einstaka blöndu af náttúru, menningu og afþreyingu. Hvort sem ferðamenn koma til að upplifa Akranes, Snæfellsnes, Borgarfjörð, Hvalfjörð eða Dalina, sýna nýjustu tölur að svæðið er orðið órjúfanlegur hluti af ferðalagi margra sem heimsækja Ísland. Hægt er að nálgast útgáfuna hér.