Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Vesturland í brennidepli vegna almyrkvans

Almyrkvinn sem gengur yfir Ísland 12. ágúst er fyrsti almyrkvinn sem sést frá landinu síðan árið 1954 og hefur vakið gríðarlega alþjóðlega athygli. Vesturland er eitt helsta áhorfssvæði landsins og því hefur verið unnið markvisst að undirbúningi til að taka á móti þeim mikla fjölda gesta sem vænst er.
Hátíðin Iceland Eclipse hófst í Snæfellsbæ í gær. (mynd.snb.is)
Hátíðin Iceland Eclipse hófst í Snæfellsbæ í gær. (mynd.snb.is)

Skilgreindir safnstaðir á Vesturlandi eru meðal annars Breiðin á Akranesi, strandlengjan í gamla bænum í Borgarnesi, strandlengjan við Ólafsvík og íþróttavöllurinn í Stykkishólmi, þar sem gestir geta notið almyrkvans við góðar aðstæður.

Umferð eykst verulega

Mikil aukning hefur þegar orðið í umferð um Vesturland dagana fyrir almyrkvann.

Undir Hafnarfjalli í Hvalfjarðarsveit, þar sem meðalumferð yfir sumartímann er um 7.900 ökutæki á dag, fóru 9.600 ökutæki um á mánudag og 10.400 ökutæki á þriðjudag.

Á Bröttubrekku, þar sem meðalumferð er um 1.050 ökutæki á dag, mældust 1.630 ökutæki á mánudag og 1.890 ökutæki á þriðjudag.

Á Snæfellsnesi er meðal sumardagsumferð við Hafursfell um 2.300 ökutæki en var á mánudaginn 3.350 ökutæki og 3.930 ökutæki í gær.

Þessar tölur sýna að umferð um Vesturland hefur aukist verulega í aðdraganda almyrkvans og búast má við enn meiri umferð þegar líður á daginn.

Snæfellsbær minnist almyrkvans með nýjum minnisvarða

Í tilefni af almyrkvanum hefur Snæfellsbær reist sérstakan minnisvarða til að varðveita minningu um þennan einstaka náttúruviðburð.

Minnisvarðinn er bæði táknrænn og fræðandi. Á honum verða upplýsingar um almyrkvann og þær einstöku aðstæður sem skapast þegar tunglið hylur sólina. Auk þess hefur hann verið hannaður sem sérstakur myndarammi, þar sem gestir geta tekið myndir til minningar um þennan sögulega dag.

Verkið var smíðað af Vélsmiðjunni Fönix í Rifi, en Anton Jónas Illugason hannaði merkingar þess.

Umfangsmikill undirbúningur

Til að tryggja örugga og góða upplifun hefur  Snæfellsjökulsþjóðgarður, í samstarfi við lögreglu, Snæfellsbæ, Vegagerðina og aðra viðbragðsaðila, undirbúið móttöku gesta af kostgæfni.

Sérstök bílastæði hafa verið útbúin á:

  • Breiðinni milli Rifs og Ólafsvíkur

  • Svalþúfu

  • Malarrifi

  • Djúpalónssandi

  • Hólahólum

  • Saxhóli

  • Eysteinsdal

  • Móðulæk

Frá kl. 09:00 er sérstök umferðarstýring í gildi á Snæfellsnesi. Einstefna er frá Búðum að Öndverðarnesi, vegurinn út á Öndverðarnes er lokaður fyrir fólksbílum og Snæfellsjökulsþjóðgarður býður upp á ókeypis rútuferðir á hálftíma fresti frá kl. 11:00. Jafnframt er einstefna yfir Jökulhálsveg frá Arnarstapa til Ólafsvíkur og Eysteinsdalur er lokaður.

Yfir 1.200 gestir með Icelandia

Ferðaþjónustufyrirtækið Icelandia flytur í dag rúmlega 1.200 erlenda gesti í 24 rútum út á Snæfellsnes til að fylgjast með almyrkvanum. Einnig verður ferðaþjónustusfyrirtækið Bustravel með 12 stórar rútur af fólki í dagsferð út á Snæfellsnes í dag til að upplifa almyrkvan. Eflaust verða fleiri rútufyrirtæki með ferðir með stóra hópa í dag.

Almyrkvinn er því ekki aðeins einstakt sjónarspil heldur einnig stór viðburður fyrir Vesturland. Með góðum undirbúningi, öflugri umferðarstýringu og samstarfi sveitarfélaga, ferðaþjónustunnar og viðbragðsaðila er markmiðið að tryggja gestum örugga og eftirminnilega upplifun af þessum sögulega degi.