Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Vesturland kynnt á Vestnorden í Grænlandi

Kristján Guðmundsson Markaðsstofu Vesturlands
Kristján Guðmundsson Markaðsstofu Vesturlands

Ferðakaupstefnan Vestnorden fór fram í Nuuk á Grænlandi dagana 22.–24. september. Kaupstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum og skapar gott tækifæri til að hitta ferðaskrifstofur og samstarfsaðila frá fjölmörgum mörkuðum.

Kristján Guðmundsson sótti kaupstefnuna fyrir hönd Markaðsstofu Vesturlands og átti þar fjölmarga fundi með erlendum ferðaskrifstofum og ferðaheildsölum. Einnig tóku nokkur ferðaþjónustufyrirtæki af Vesturlandi þátt í kaupstefnunni og kynntu þar sína starfsemi og þjónustu.

Áhersla Markaðsstofu Vesturlands var meðal annars á að kynna fjögur ferðasvæði Vesturlands – Akranes og Hvalfjörð, Borgarfjörð, Snæfellsnes og Dali – ásamt þeim ferðaleiðum sem hafa verið þróaðar innan landshlutans.

Ferðaleiðirnar reyndust góður grunnur að samtali við ferðaskrifstofur og hjálpuðu til við að sýna hvernig hægt er að tengja saman ólíka staði, upplifanir og þjónustu á Vesturlandi. Meðal annars var rætt um möguleika á lengri dvöl á svæðinu og hvernig hægt væri að byggja Vesturland í auknum mæli inn í ferðir um Ísland.

„Það var greinilegt að margir þekkja einstaka staði á Vesturlandi vel en hafa áhuga á að fá betri yfirsýn yfir svæðið í heild. Ferðaleiðirnar og skipting Vesturlands í fjögur ferðasvæði hjálpa okkur mikið við að segja þá sögu og sýna hversu fjölbreytt svæðið er,“ segir Kristján.

Mikill áhugi var meðal ferðaskrifstofa á að kynnast Vesturlandi betur, bæði nýjum upplifunum og þeim möguleikum sem felast í því að ferðast hægar um landshlutann og dvelja lengur á hverju svæði.

Vestnorden er jafnframt mikilvægur vettvangur til að viðhalda tengslum við núverandi samstarfsaðila og mynda ný tengsl. Næstu skref hjá Markaðsstofu Vesturlands verða því að fylgja eftir þeim samtölum og tengslum sem mynduðust á kaupstefnunni og halda áfram að kynna Vesturland fyrir erlendum ferðasöluaðilum.