Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Vesturland kynnt á vinnustofu í Kanada

Kristján Guðmundsson kynnir Vesturland
Kristján Guðmundsson kynnir Vesturland

Kristján Guðmundsson var fulltrúi Markaðsstofu Vesturlands á vinnustofu í Kanada á dögunum. Íslandsstofa sá um skipulagningu vinnustofunnar en alls tóku 17 fyrirtæki og fjórar Markaðsstofur þátt.

Á vinnustofunni var íslensk ferðaþjónusta kynnt fyrir erlendum söluaðilum og ferðaskrifstofum. Viðburðurinn fór fram í þremur borgum: Toronto, Montreal og Vancouver.
Um 20 fundir voru haldnir á dag og voru þeir oft tvísetnir.

Kristján átti fjölda funda með fulltrúum ferðaþjónustufyrirtækja, söluaðilum og ferðaskrifstofum. Áhersla var lögð á að kynna ferðaleiðir um allt Vesturland og þá miklu möguleika sem landshlutinn hefur upp á að bjóða fyrir ferðamenn.

Mikill áhugi á Íslandi sem áfangastað og á ferðaleiðum um Vesturland. Fundirnir gáfu gott tækifæri til að koma upplýsingum um svæðið á framfæri, styrkja tengsl við erlenda samstarfsaðila og vekja athygli á þeim fjölbreyttu upplifunum sem Vesturland býður upp á.
Beint flug er frá öllum þessum borgum og bindum við vonir við aukin fjölda Kanadamanna inn á Vesturland.