Á Byggðasafninu í Görðum gefst kostur á að kynna sér sögu Akraness og nágrennis. Safnið var stofnað og opnað á árinu 1959 og er staðsett á hinu forna höfuðbóli að Görðum á Akranesi sem var kirkjustaður og presstsetur frá öndverðri kristni til loka 19. aldar.
Opnunartími:
Sumaropnun 15. maí - 15. september, alla daga frá 10:00-17:00
Vetraropnun 16. september - 14. maí, laugardaga 10:00-17:00, hægt að panta fyrir hópa
Hægt er að leigja stúkuhúsið undir fundarhöld.