Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Gönguleiðir

Gönguleiðir á Vesturlandi

Á Vesturlandi má finna gönguleiðir af ýmsum toga og á öllum erfiðleikastigum. Hér eru stuttar göngur, lengri gönguleiðir, leiðir á láglendi, fjallaleiðir og allt þar á milli.

Margar gönguleiðir á svæðinu eru merktar með stikum af öryggisástæðum. Við mælum eindregið með því að göngufólk fylgi merktum leiðum, GPS-hnitum og leiðamerkingum.

Allir ættu að geta fundið gönguleið við sitt hæfi. Sjá erfiðleikakvarðann hér fyrir neðan.

Erfiðleikastig gönguleiða

Auðveld

Góðir stígar og gönguleiðir sem flestir ættu að geta gengið. Auðveldar og stuttar leiðir sem henta breiðum hópi göngufólks. Slíkar leiðir geta hentað barnavögnum og hjólastólum og eru án teljandi hindrana eða erfiðleika.

Miðlungs

Einfaldar útivistarleiðir sem henta fjölbreyttum hópi notenda, þar á meðal fjölskyldum og hópum. Hækkun á leiðinni er yfirleitt undir 100 metrum.

Krefjandi

Gönguleiðir fyrir vant göngufólk. Ekki er víst að greinilegur stígur sé alla leið og leiðin getur farið um gróft eða erfitt undirlag, óbrúaða læki, brattar hækkanir, lausa möl eða minni ár. Mikilvægt er að fylgjast vel með veðri og aðstæðum á svæðinu áður en lagt er af stað.

Erfið

Gönguleiðir sem henta aðeins mjög vönu göngufólki með réttan búnað. Leiðir geta verið mjög erfiðar og farið um stærri óbrúaðar ár, bratt og grýtt landslag, erfiðar aðstæður og kafla sem geta verið hættulegir fyrir þá sem eru ekki vanir slíku landslagi.

Skrá ferðaáætlun

Grunnupplýsingar um öryggi fyrir gönguferðir

Fylgist með veðurspá og verið viðbúin því að á Íslandi getur veður breyst mjög hratt. Einnig er mikilvægt að fara yfir búnað og kanna aðstæður áður en lagt er af stað.

Hlý föt, góðir gönguskór, vettlingar, húfa og grunnbúnaður til varnar veðri og vindum eru mikilvægur hluti af undirbúningi. Einnig er gott að hafa GPS-tæki, vatn, nesti, aukafatnað og sjúkrabúnað með í bakpoka.

Áður en lagt er af stað er mikilvægt að skoða veðurspá hjá Veðurstofu Íslands. Ef veðurspá er slæm eða gert er ráð fyrir vindi yfir 18 metrum á sekúndu er rétt að fresta ferðinni eða velja aðra leið.

Helstu áhættur í vetrargöngum

Sérstaklega mikilvægt er að undirbúa sig vel fyrir göngur að hausti og vetri. Þegar gengið er á fjöll að vetri til er mikilvægt að fara ekki einn og láta aðra vita af ferðaáætlun.

• Hætta á að falla í gegnum ís á vatni

• Hætta á að blotna, kólna og örmagnast

• Hætta á að missa símasamband eða samband við aðra

• Hætta á að villast

• Hætta á að hrasa eða renna á ís

• Hætta á að renna í hálku í fjalllendi

• Hætta á að falla fram af brúnum eða klettum

• Hætta á vandræðum vegna ónógs undirbúnings

• Hætta á að vanmeta aðstæður eða ofmeta eigin getu

Niðurstöður: 37 Hreinsa síu
Vesturland
Þrep 1 - Létt leið
1 - 2 klukkustundir
Vesturland
Þrep 1 - Létt leið
30 mínútur
Vesturland
Þrep 3 - Krefjandi leið
2 - 3 klukkustundir
Vesturland
Þrep 2 - Miðlungs leið
30 mínútur
Vesturland
Þrep 1 - Létt leið
30 mínútur
Vesturland
Aðgengi fyrir alla
30 mínútur
Vesturland
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 - 2 klukkustundir
Vesturland
Þrep 1 - Létt leið
30 mínútur
Vesturland
Þrep 1 - Létt leið
1 - 2 klukkustundir
Vesturland
Aðgengi fyrir alla
2 - 3 klukkustundir
Vesturland
Aðgengi fyrir alla
30 mínútur
Vesturland
Þrep 2 - Miðlungs leið
3 - 4 klukkustundir
Vesturland
Þrep 1 - Létt leið
1 - 2 klukkustundir
Vesturland
Þrep 2 - Miðlungs leið
3 - 4 klukkustundir
Vesturland
Þrep 1 - Létt leið
1 - 2 klukkustundir
Vesturland
Þrep 2 - Miðlungs leið
2 - 3 klukkustundir
Vesturland
Þrep 2 - Miðlungs leið
30 - 60 mínútur
Vesturland
Þrep 1 - Létt leið
30 mínútur