Jafnaskarðsskógur gönguleið Gönguleið
Ein af útivistarleyndarmálum Vesturlands.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Vesturland, Borgarbyggð
Upphafspunktur
N64°45.3059 W021°35.7743
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
- Trjákurl
- Gras
- Möl
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
- Hálka - Hál og sleip leið
- Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Ferðaleið er opin 12 mánuði ársins en hafa ber í huga aðstæður yfir vetrarmánuði.
Jafnaskarðsskógur er í eigu skógræktarinnar og er eitt af útivistarleyndarmálum Vesturlands. Göngustígur var fyrst lagður um skóginn árið 1995 að auki sem skógurinn tengist öðrum áhugaverðum gönguleiðum. Jafnaskarðsskógur er staðsettur í brekkum suðvestan við Hreðavatn en útsýni af hæðum ofan skógarins er stórfenglegt. Útsýni yfir Eiríks-og Langjökul, Hreðavatn og nærrliggjandi sveitir auk útsýnis til Skjaldbreiðar og Botnssúla í fjarska.
Beygt er við þjóðveg nr.1 við Grábrókarhraun og keyrt að Hreðavatni. Keyrt er framhjá sumarbústöðum en komið er að bílastæði sem er vel merkt. Göngustígur er fjölbreyttur, með brattar hlíðar í bland við léttar leiðir. Gönguleiðir eru ekki merktar en vel sýnilegar, útsýnisstaðir eru margir á svæðinu auk þess sem áningarstaðir, með borðum og bekkjum, er einnig að finna. Hægt er að eyða heilum degi á þessu svæði en einnig eru margar náttúruperlur steinsar frá Jafnaskarðsskógi.