Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ferðafélag Borgarfjarðar - Maríuhöfn í Kjós

5. september kl. 10:00-12:00

Mæting við brúna á Laxá í Kjós kl. 10. Gengið meðfram ánni til sjávar og áfram út í Maríuhöfn, sem er forn verslunarstaður frá Þjóðveldisöld svo þar verður sögu- og kaffistopp. Síðan er haldið eftir Búðasandi, en þar er talið að stærsti kaupstaður landsins hafi verið á 14. öld. Gengið áfram fyrir Hálsnes og eftir sumarbústaðavegi að þjóðvegi og aftur í bíla. Hringurinn er tæplega 10 km. langur, lítil hækkun.

Göngustjóri Jónína Pálsdóttir.

GPS punktar

N64° 20' 28.703" W21° 36' 30.000"

Staðsetning

Laxá í Kjós