Viðburður haldin af: Eydís Líndal Finnbogadóttir, Bjarnheiður Hallsdóttir and Anna Bjarnadóttir
Staðsetning viðburðar: Akranes
Nú höldum við gönguhátíð á Akranesi.
- Við leggjum af stað kl. 9 um morgun frá Akranesvita, göngum upp að Akrafjalli, uppá fjall og förum Akrafjallshringinn, þaðan er stefnan tekin að Hesthúsahverfinu og Elínarhöfða og ströndin þrædd um Kalmansvík, Kampinn, Krókalón, Breiðina og endum við Akranesvita.
- Heildargangan eru um 30 km.
- Fyrirkomulagið verður þannig að þau ykkar sem hafið áhuga á að taka þátt í að ganga alla leiðina eða Akrafjallshringinn þurfa að skrá sig fyrirfram og er þátttökugjaldi stillt í hóf eða 6000 kr og innifalið í því drykkjarstöðvar, orkustykki og vandað eyrnaband sem verður einkenni hátíðarinnar.
- Einnig verður hægt að koma inn í gönguna á ákveðnum stöðum, og ganga með að hluta, allt eftir getu og löngun fólks og er ekki gert ráð fyrir kostnaði vegna þess en framlög verða vel þegin. Hér er ekki um keppni að ræða, ekki um hlaup að ræða heldur rólega göngu þar sem áherslan er á útivist og samveru.
- Við munum auglýsa fyrirkomulagið betur fram að hátíðinni.
- Það verður takmarkaður fjöldi sem mun geta farið með alla leið sem helgast af takmörkuðu plássi í Akrafjallshringnum.
- Fararstjórar verða með alla leið og er um vant útivistarfólk að ræða.
- Til að kanna áhuga fólks þá megið þið endilega dreifa þessum viðburði eins og vindurinn og endilega láta vita hvort þið hafið áhuga á þátttöku.
- Skráning hefst í mars.
- Allur ágóði af viðburðinum mun fara í styrki til félagsstarfs á Akranesi.