Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

GÓSS í Bæjarkirkju

13. júní kl. 19:30-21:00

Upplýsingar um verð

6000kr

Hljómsveitin var stofnuð árið 2017 gagngert til þess að meðlimir gætu pakkað í bíl og komist út fyrir borgina, til þess að flakka um sveitirnar og spila músík og hitta fólk. Þau hafa undanfarin ár rúntað spilandi og syngjandi þvers og kruss um landið, réttsælis sem og rangsælis. Eina plötu eiga þau í sínum fórum, plötuna Góssentíð, sem kom út 2019 og hlaut mikið lof. Prógramið eru lög héðan og þaðan – frumsamin lög og tökulög, íslensk ættjarðarlög og erlend dægurlög. Allt í bland og öllu skellt í einhverskonar þríraddaðan sveitabúning.

GPS punktar

N64° 37' 20.136" W21° 33' 2.116"

Staðsetning

Bæjarkirkja