Hafnarfjall Ultra er utanvegahlaup sem ræst verður í annað sinn í Borgarnesi laugardaginn 27. júní 2026. Hlaupahópurinn Flandri í Borgarnesi stendur að hlaupinu, en hópurinn hefur um árabil staðið fyrir Flandrasprettum, sem eru 5 km götuhlauparöð sem haldin er mánaðarlega yfir vetrarmánuðina.
Þátttakendur í Hafnarfjall Ultra geta valið milli fjögurra vegalengda:
- Hafnarfjall Tindur 15,08 km, 844 m hækkun
- Hafnarfjall 7 tindar 23,87 km, 1.218 m hækkun
- Hafnarfjall 7 tindar og dalir 36,20 km, 2.316 m hækkun
- Hafnarfjall fjölskylduhlaup 2,39 km, 155 m hækkun
Þrjú lengri hlaupin eru ræst við Menntaskóla Borgarfjarðar, við hliðina á Nettóversluninni í Borgarnesi – og enda á sama stað. Fjölskylduhlaupið er hins vegar ræst á malarvegi við rætur Hafnarfjalls. Rúta flytur keppendur þangað frá menntaskólanum og aftur til baka að hlaupi loknu.
Dagskrá hlaupadags
- Kl. 09:00 Start: Öll lengri hlaupin við Menntaskóla Borgarfjarðar (MB)
- Kl. 10:30 Von á fyrstu keppendum í „Hafnarfjall Tindur“ í mark við MB
- Kl. 11:00 Brottför rútu sem flytur þátttakendur í fjölskylduhlaupi frá MB að rásmarki
- Kl. 11:30 Start: Fjölskylduhlaup við drykkjarstöð neðan við Hafnarfjall
- Kl. 11:30 Von á fyrstu keppendum í „Hafnarfjall 7 tindar“ í mark við MB
- Kl. 11:45 Von á fyrstu keppendum í fjölskylduhlaupinu í mark við drykkjarstöðina
- Kl. 13:00 Von á fyrstu keppendum í „Hafnarfjall 7 tindar og dalir“ í mark við MB
- Kl. 17:00 Marki lokað
- Tímataka og númer (Tímataka verður með flögum (https://timataka.net))
- Brautar- og öryggisgæsla
- Drykkir og næring á drykkjarstöðvum og í marki
- Salernisaðstaða við rásmark og endamark lengri hlaupanna
- Verðlaun fyrir 3 efstu karla og konur
- Þátttökuverðlaun fyrir öll þau sem ljúka hlaupinu
- Rútufar fyrir þátttakendur í fjölskylduhlaupi
- Frítt í sund í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi að hlaupi loknu, gegn framvísun hlaupanúmers
Afhending gagna
Hlaupagögn verða afhent í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi fimmtudaginn 25. júní kl. 18:00-20:00 og í Reykjavík föstudaginn 26. júní kl. 13:00-18:00 (nánari upplýsingar um staðsetningu væntanlegar). Einnig verður opið fyrir afhendingu gagna í Menntaskóla Borgarfjarðar á laugardagsmorgninum til kl. 8:30.
Tímamörk
Hafnarfjall 7 tindar og dalir (36 km): Hámark 5 klst. að 4. drykkjarstöð (24 km)
Þátttakendum sem ekki ná þessum mörkum verður fylgt niður að bíl sem skilar þeim í Borgarnes. Ekki eru tímamörk í öðrum hlaupum dagsins, en markinu við MB verður lokað kl. 17:00.
Aldurstakmark
18 ár í tvö lengstu hlaupin.
14 ár í Hafnarfjall Tind
Skyldubúnaður (fyrir tvö lengstu hlaupin)
- Margnota drykkjarmál
- Fullhlaðinn farsími
- „Trakk“ af leiðinni í hlaupaúri eða í síma (tenglar verða sendir út fyrir hlaup)
- Álteppi
- Flauta
- Húfa/buff og hanskar
- Vindjakki (langerma)
Skyldubúnaður (fyrir „Hafnarfjall Tindur“)
- Margnota drykkjarmál
- Húfa/buff og hanskar
Keppnisstjóra er heimilt að bæta við skyldubúnaði ef veðurspá gefur tilefni til. Slíkt verður þá tilkynnt hlutaðeigandi hlaupurum í síðasta lagi kvöldið fyrir hlaup.
Drykkjarstöðvar
Fjórar drykkjarstöðvar verða á lengstu leiðinni, þrjár á þeirri næstlengstu og tvær í „Hafnarfjall Tindur“. Auk þess verður boðið upp á hressingu við endamark. Drykkjarstöðin á malarveginum við rætur Hafnarfjalls er sameiginleg öllum fjallaleiðunum, bæði snemma í hlaupunum (4 km) og á bakaleiðinni (11/20/32 km). Drykkjarstöðin í Tungudal/Grjóteyrardal (15 km) nýtist á báðum lengri fjallaleiðunum og á lengstu leiðinni verður einnig drykkjarstöð neðst í Hafnardal (stutt frá Illagili, 24 km). Á drykkjarstöðvunum verður boðið upp á vatn, kók, orkudrykk, súkkulaði, banana og appelsínur. Engin pappa- eða plastmál verða þar til staðar, heldur verða hlauparar að koma með fjölnota glös til að geta fengið drykki.
Brautarvarsla og merkingar
Allar leiðir verða merktar á áberandi hátt, auk þess sem hluti hlaupaleiðarinnar á fjöllunum fylgir merktri gönguleið. Brautarvarsla verður á mikilvægustu stöðum, svo sem þar sem leiðir skilja. Þá verða tímatökuhlið á toppum Hafnarfjalls og Tungukolls. Vegna öryggis og brautarvörslu er mikilvægt að allir hlauparar hlaupi í gegnum hliðin.
Gerðar verða sérstakar ráðstafanir til þess að hlauparar verði ekki í hættu vegna bílaumferðar á Borgarfjarðarbrúnni.
Verðlaun
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokkum. Í fjölskylduhlaupinu er verðlaun veitt fyrir tvo aldursflokka; annars vegar 12 ára og yngri (miðað við fæðingarár) og hins vegar eldri en 12 ára. Öll þau sem koma í mark fá auk þess þátttökuverðlaun og einnig verða veitt vegleg útdráttarverðlaun.
ITRA/UTMB-stig
Lengri hlaupin (15, 24 og 36 km) gefa ITRA-stig og UTMB-stig.
Varúð
- Gæta þarf sérstakrar varúðar vegna umferðar þegar hlaupið er yfir Borgarfjarðarbrúna.
- Hlauparar á leið upp Hafnarfjall þurfa að víkja vel til hægri þegar þeir mæta hlaupurum á niðurleið.
- Hlaupin henta ekki lofthræddum.
Nánari upplýsingar
Facebooksíða hlaupsins er https://www.facebook.com/profile.php?id=61569544243979.
Instagramsíða hlaupsins er https://www.instagram.com/hafnarfjallultra.
Enn nánari upplýsingar:
Kristinn Óskar Sigmundsson, kiddo1@simnet.is, 852 2203
Stefán Gíslason, stefan@environice.is, 862 0538