Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu verður haldinn að vanda helgi fyrsta vetrardags.
Á dagskrá verða eftirtaldir viðburðir:
Föstudagurinn 24. október
18:00 Hrútasýning sunnan varnargirðingar á Háafelli í Miðdölum. Þar mæta glæsilegustu lambhrútar haustsins til sýningar og samanburðar. Jafnframt verður tækifæri til að sýna og sjá skrautlegustu gimbrarnar.

Laugardagurinn 25. október
11:00-16:00 „Matur er mannsins megin“ matarmarkaður ásamt handverki úr héraði
Markaðurinn verður í Reiðhöllinni í Búðardal en þar verður hægt að komast í návígi við allt það sem Dalirnir hafa upp á að bjóða þegar kemur að mat og handverki. Í reiðhöllinni verður einnig veitingasala auk þess sem önnur fyrirtæki í landbúnaði verða á staðnum og kynna sínar vörur og þjónustu.

11:00 Hrútasýning norðan varnargirðingar í Reiðhöllinni í Búðardal.
Þar verður seinni hluti sýningarinnar með efnilegustu hrútunum í Dalahólfi nyrðra. Jafnframt verður tækifæri til að sýna og sjá skrautlegustu gimbrarnar.

13:00 Íslandsmeistaramótið í rúning verður haldið og spennandi að sjá hver hreppir titilinn í ár. Skráning á mótið fer fram á netfangið steinthor99@gmail.com eða síma 858-1999 til og með þriðjudagsins 21. október.
19:30 Sviðaveisla að Laugum í Sælingsdal
Sígilt hlaðborð sviða með tilheyrandi meðlæti, skemmtun og dansleikur.
Nánari upplýsingar um Sviðaveisluna má sjá hér https://fb.me/e/5gww3Ucse

Þema ljósmyndakeppninnar í ár er "Sauðkindin og sólin". Nú er um að gera að smella af mynd þegar augnablikið kemur eða fara yfir þau augnablik sem hafa átt sér stað og senda inn mynd. Myndirnar sendist á netfangið skerdingar@gmail.com til og með 21. október. Úrslitin verða kynnt og verðlaun veitt í reiðhöllinni 25. október.