Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Írskir dagar 2022

30. júní - 3. júlí

Fjölskyldu- og menningarhátíðin Írskir dagar

Skagamenn eru af írskum uppruna, það fer ekkert á milli mála. Þeir láta sér fátt fyrir brjósti brenna, eru lífsglaðir og skemmtilegir heim að sækja og miklir baráttujaxlar, ekki síst á fótboltavellinum! Írar námu land á Skaga á fyrstu árum Íslandsbyggðar en nafnið Akranes kom til síðar og er dregið af kornrækt og akuryrkju sem þótti heppileg á hinu frjósama landi sem er á nesinu.

Í byrjun júlí ár hvert halda Skagamenn hátíðlega hina svokölluðu Írsku daga til að minnast hinnar keltnesku arfleifðar sinnar og gera sér glaðan dag um leið. Þessa daga eru brottfluttir Skagamenn kallaðir heim og á Írskum dögum er fjölskyldufólk sérstaklega boðið velkomið í heimsókn á Akranes. Fólk sækir að úr öllum áttum til að drekka í sig írsk-íslenska menningarblöndu, sýna sig og sjá aðra eða hitta vini og ættingja. Á Írskum dögum fer Akranes í sparibúninginn sem er að sjálfsögðu í írsku fánalitunum. Alls staðar eru fánar og flögg, borðar og skraut sem minnir á Írland. Þetta er sannkölluð fjölskylduhátíð með fjölbreyttri skemmtun fyrir alla; íþróttir, markaður, strandlíf, dorgveiði, sandkastalakeppni og síðast en ekki síst keppnin um rauðhærðasta Íslendinginn. Út um allan bæ eru grillveislur en aðalhátíðarsvæðið er að sjálfsögðu í miðbænum og á Langasandi. Hin árlega Lopapeysa er svo á sínum stað. Íslendingar nær og fjær og erlendir gestir eru hér með boðnir sérstaklega velkomnir á Írska daga.

Staðsetning

Akranes

Sími