Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Jaðarsjón

9. maí - 1. júní
Verið velkomin á opnun myndlistasýningarinnar
Jaðarsjón í Safnahúsinu í Borgarnesi þann 9. maí. frá 15-17
Léttar veitingar og lifandi tónlist.
Soffía Björg Óðinsdóttir sýnir akrílverk úr ímyndaðri náttúru.
Fjöll, firðir, fossar og hálendi úr hugarheimi listakonunnar.
Sýningin mun vera opin frá 9. maí til 1. júní á opnunartíma Safnahússins.
Soffía Björg Óðinsdóttir er fædd og uppalin í Einarsnesi í Borgarfirði.
Hún er búin að vera starfandi tónlistarkona frá árinu 2010 og er þetta hennar fyrsta myndlistarsýning.

GPS punktar

N64° 32' 12.082" W21° 55' 13.308"

Staðsetning

Safnahús Borgarfjarðar