Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Mr. Skallagrímsson

16. maí - 6. júní

Og gagnrýnendur lofuðu sýninguna í hástert:

Hann hefur okkur áhorfendur í hendi sér; heldur okkur við frásögnina, við engjumst um af hlátri, grípum andann á lofti, dáumst að honum; hvílir okkur með því að tefja frásögnina með útúrdúrum. Haukfránn, eldsnöggur – og áreynslulaust – virðist hann þegar upp er staðið hafa spunnið áfram eða skáldað upp þessa fornu sögu úr nærveru okkar, tilvist okkar.“ (María Kristjánsdóttir Morgunblaðið)

Og Flosi Ólafsson skrifaði: Að mínum dómi markar flutningur Benedikts Erlingssonar á Egils sögu Skallagrímssonar tímamót í íslenskri leikhúsmenningu. Skemmst frá því að segja að svo heillaður var ég á frumflutningi verksins við opnun Landnámssetursins í Borgarnesi að ég hikaði ekki við að fara strax á aðra sýningu kvöldið eftir og er síðan búinn að liggja í frumtextanum dægrin löng.

Mér finnst ekkert ofmælt þó ég segi að nálgun Benedikts og túlkun hans á verkinu sé merkasta framlag íslenskrar leikhúsmenningar til gullaldarbókmenntanna frá upphafi.

Benedikt flytur efnisþráð Eglu á svo kaldhæðinn og töfrandi hátt að manni verður ljóst að það er ekkert athugavert við það að lesa íslenskar fornbókmenntir með bros á vör og hlátur í huga.“

Og Þráinn Bertelsson skrifaði:Helst hefði ég viljað svífa á hann og toga í ermina á jakkanum hans og suða: Elsku Benni minn, gerðu það ekki hætta núna. Segðu mér söguna aftur og ég skal alltaf vera góður drengur og klára matinn minn.“

Það er okkur því mikið gleðiefni að Benedikt skuli vera tilbúin að koma til okkar aftur á þessum tímamótum og gefa þeim sem misstu af sýningunni kost á að sjá hana og þeim sem endilega vilja koma aftur tækifæri til þess.

Sýningar hefjast 16. maí kl. 17:00 og við hvetjum fólk til að bóka tímanlega því sýningafjöldi er takmarkaður. Hægt er að panta borð í okkar vinsæla veitingastað í tengslum við sýninguna með tölvupósti á landnam@landnam.is.

GPS punktar

N64° 32' 8.610" W21° 55' 23.254"

Staðsetning

Landnámssetur Íslands