Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Rósa, Rímsen og Tríó Zimsen á sumartónleikum Hallgrímskirkju í Saurbæ, Hvalfirði

26. júní kl. 16:00-17:00

Upplýsingar um verð

3000 kr.

Undanfarin ár hefur fjölskylda Rósu Jóhannesdóttur komið fram á ýmsum stöðum, leikandi á fiðlur, harmonikku, ukulele og píanó, ásamt söng og kveðskap. Börnin sem kalla sig Tríó Zimsen, syngja alls konar lög í þremur röddum og þær mæðgur syngja dúetta saman. Inn í tónlistardagskrána flétta þau kveðskap, oftast eftir fjölskylduföðurinn, Helga Zimsen en ýmis önnur skáld slæðast einnig með eins og Hallgrímur Pétursson, Þórarinn Eldjárn, Davíð Stefánsson o.fl.

Dagskráin hentar jafnt fullorðnum sem og börnum, erlendum gestum sem og íslenskum.

Staðsetning

Hallgrímskirkja í Saurbæ, Saurbær, Hvalfjarðarsveit, 301, Iceland

Sími