Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sinfó á Akranesi / Kvöldtónleikar

15. maí kl. 19:00-21:00

Upplýsingar um verð

Ókeypis
Sinfóníuhljómsveit Íslands er það mikið kappsmál að allir landsmenn fái notið tónleika hennar. Stefnumót sveitarinnar við áheyrendur víða um landið eru ævinlega skemmtileg og gefandi. Vorið 2025 heimsótti hljómsveitin nokkra þéttbýlisstaði á Suðurlandi en nú er ferðinni heitið upp á Akranes. Þar njótum við
enn einu sinni afraksturs blómlegs tónlistarstarfs um allt land og bjóðum upp á sannkallaða söngveislu með kórum og einsöngvurum af Vesturlandi.
Um tónsprotann heldur Hjörtur Páll Eggertsson en einsöngvarar eru þau Benedikt Kristjánsson, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Björg Þórhallsdóttir, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir og Kristín Sveinsdóttir. Kórarnir sem koma fram með hljómsveitinni eru Freyjukórinn, Kvennasveitin Skaði, Karlakórinn Söngbræður, Karlakórinn Heiðbjört, Karlakórinn Svanir, Kvennakórinn Ymur, Gleðigjafar, Hljómur og Kór Akraneskirkju.
Aðgangur er ókeypis og eru öll velkomin.
Hljómsveitarstjóri
Hjörtur Páll Eggertsson
Einsöngvarar
Björg Þórhallsdóttir
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir
Hanna Þóra Guðbrandsdóttir
Kristín Sveinsdóttir
Benedikt Kristjánsson
Kórar
Freyjukórinn
Kvennasveitin Skaði
Karlakórinn Söngbræður
Karlakórinn Heiðbjört
Karlakórinn Svanir
Kvennakórinn Ymur
Gleðigjafar
Hljómur
Kór Akraneskirkju

GPS punktar

N64° 19' 6.380" W22° 3' 29.458"

Staðsetning

Íþróttamiðstöð Jaðarsbökkum