Á bæjarhátíðinni „Heim í Búðardal“ er kannski minna um brúðarval sem bíður í röðum en með sanni má segja að það sé svaka partý og veislunni margt í.
Hátíðin er vel sótt af heimamönnum og gestum þeirra, þar á meðal brottfluttum Dalamönnum. Áherslan er lögð á fjölskylduvæna og heimatilbúna dagskrá og viðburði.
Bærinn er skreyttur hátt og lágt. Íbúar og fyrirtæki hafa opið fyrir gesti og gangandi. Dalamenn skemmta sér við leiki og með þátttöku í ýmsum dagskrárliðum!
Frekari upplýsingar um viðburði er hér.