Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Í samsæti hlutanna / In the Company of Objects - Leirlistafélag Íslands í Norska húsinu

3. júlí - 9. ágúst

Leirlistafélagið 45 ára

Sýninguna Í samsæti hlutanna prýða verk 34 leirlistamanna sem fást við nytjahluti. Leirmunir eru órjúfanlegur hluti hversdagslífsins. Matardiskar sem notaðir eru daglega, kaffibollar sem ganga kynslóða á milli, sparistell sem aðeins er dregið fram við hátíðleg tilefni og blómavasar sem settir eru á mitt borðið þegar gesti ber að garði mynda umgjörð samverustunda og verða vettvangur tengslamyndunar. Áhorfendum er boðið að eyða tíma með þessum ólíku hlutum og íhuga bæði nýjar og gamlar leiðir til að nýta keramik til samveru.

Listamenn eru:

Aldís Yngvadóttir, Anna Sigríður Hróðmarsdóttir, Anna Story, Antonía Bergþórsdóttir, Auður Gunnarsdóttir, Auður Inga Ingvarsdóttir, Ása Tryggvadóttir, Daði Harðarson, Dagný Gylfadóttir, Elín Guðmundsdóttir, Erla Huld Sigurðardóttir, Erna Jónsdóttir, Guðný Hafsteinsdóttir, Guðný M. Magnúsdóttir, Guðný Rúnarsdóttir, Hafdís Brands, Halldóra Hafsteinsdóttir, Halla Ásgeirsdóttir, Helga Arnalds, Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir, Jane Alexander, Kata Sümegi, Katla Rúnarsdóttir, Katrín V. Karlsdóttir Dyrving, María Skarphéðinsdóttir, Melkorka Matthíasdóttir, Ólöf Erla Bjarnadóttir, Ólöf Sæmundsdóttir, Sigríður Guðsteinsdóttir, Sunna Björg Sigfríðardóttir, Valdís Ólafsdóttir, Ylona Supèr, Þóra Breiðfjörð, Þórdís Baldursdóttir.

Sýningarstjórn: Agnes Ársælsdóttir
Sýningarnefnd: Aldís Yngvadóttir, Guðný Rúnarsdóttir, Ylona Supèr

Sýningarhönnun: Dorka Csora

Grafísk hönnun: Agnar Stefánsson

GPS punktar

N65° 4' 37.844" W22° 43' 37.019"

Staðsetning

Norska húsinu í Stykkishólmi