Laugardaginn 29. ágúst næstkomandi verður Ferðafélag Snæfellsness með göngu á Ljósufjöll, og rennur allur ágóði af göngunni í starf FFSN. Að lokinni göngu verður farið að Miðhrauni (Lava Resort) í hraunbaðið og því næst í kvöldmat.
Við hittumst klukkan 9:00 á upphafsstað göngu og búast má við 7-9 klukkustunda verkefni. Þetta er ganga sem hentar vönu göngufólki í góðu gönguformi. Gangan er 15-18 km og hækkun á göngu um og yfir 1000 m. Næst tindunum er gengið í landslagi sem þungt á fótinn. Ef veður og aðstæður leyfa verður reynt að ganga á alla þrjá tindana. Nauðsynlegt er að gengið sé í góðum gönguskóm með ökklastuðningi.
Nánari upplýsingar eru sendar í tölvupósti nokkrum dögum fyrir göngu.
Fararstjóri er Guðmundur Rúnar Svansson.
Gangan kostar kr. 18.500. Innifalið er fararstjórn, heitur pottur og kvöldmatur í Hlöðunni á Miðhrauninni. Skráning í ferðina með tölvupósti á netfangið ffsn@ffsn.is. Taka skal fram nafn þátttakenda, símanúmer og netfang. Takmarkaður fjöldi – fyrstur kemur, fyrstur fær!!!
Um þessa göngu gilda ferðaskilmálar og reglur Ferðafélags Íslands.