Rætur framtíðar – málþing um fæðuöryggi og sjálfbæra landnýtingu
Rætur framtíðar (Roots of the Future) er opið málþing fyrir almenning sem hefur það að markmiði að efla samtal og samstarf háskólasamfélagsins, atvinnulífs og almennings um fæðuöryggi og sjálfbæra landnýtingu, bæði á Íslandi og á alþjóðavísu.
Á dagskránni verður fjölbreytt umfjöllun um meðal annars sveppafjölbreytni og svepparækt, aquaponics (samþætta fisk- og plönturækt) og menntun á sviði sjálfbærni.
Hlýnun jarðar og truflanir á alþjóðlegum aðfangakeðjum hafa veruleg áhrif á Ísland. Til að tryggja fæðuöryggi til framtíðar þarf að endurmeta hversu háð landið er innfluttum matvælum og áburði.
Sérstök áhersla er lögð á að kynna endurnýjandi aðferðir sem bæta gæði jarðvegs og fjölbreyttari leiðir til matvælaframleiðslu, svo sem þangnýtingu og svepparækt.
Líftæknilausnir við meðhöndlun lífræns úrgangs geta einnig gegnt mikilvægu hlutverki. Þær geta bæði stuðlað að framleiðslu innlends eldsneytis og hráefna fyrir iðnað, auk þess að endurheimta hringrás næringarefna í vistkerfum og draga úr þörf fyrir innfluttan áburð.
Sjálfbær landbúnaðarframleiðsla byggir á heilbrigðum vistkerfum. Með markvissri skógrækt og endurheimt vistkerfa er hægt að styðja við landbúnað í stað þess að líta á náttúruvernd og matvælaframleiðslu sem andstæða hagsmuni.
Jafnframt er mikilvægt að byggja upp staðbundnari fæðukerfi og efla þátttöku hagaðila. Slíkt eykur seiglu samfélagsins og gerir það betur í stakk búið til að takast á við óvæntar áskoranir sem geta raskað mjög skilvirkum, en viðkvæmum, kerfum.
Málþingið leggur einnig áherslu á að miðla reynslu bænda sem hafa innleitt nýjar aðferðir sem þróaðar hafa verið erlendis og studdar rannsóknum. Með því að deila reynslu sinni, árangri og áskorunum geta þeir hjálpað öðrum að þróa hagkvæmari og árangursríkari lausnir.
Með því að skapa vettvang þar sem sérfræðingar, frumkvöðlar, bændur og almenningur geta hist, skiptst á hugmyndum og myndað ný tengsl, leitast Rætur framtíðar við að stuðla að samstarfi og samtali sem styrkir fæðuöryggi og sjálfbæra framtíð Íslands.