Reykholtshátíð 2026 verður haldin 24. til 26. júlí. Hátíðin í ár er sú þrítugasta í röðinni og ber upp á þrjátíu ára vígsluafmæli Reykholtskirkju.
Söngur hefur jafnan skipað veglegan sess á Reykholtshátíð ásamt kammertónlist og nú kemur Arnheiður Eiríksdóttir mezzósópran í fyrsta sinn fram á Reykholtshátíð. Feðgarnir Jóhann Kristinsson og Kristinn Sigmundsson sungu á Reykholtshátíð fyrir sex árum síðan og komust þá færri að en vildu á tónleikana. Þeir snúa nú aftur með nýja efnisskrá í tilefni af útgáfu hljómplötu sem væntanleg er á þessu ári. Elena Postumi píanóleikari er meðleikari en hún er hátíðargestum að góðu kunn.
Tvíeykið Duo Stemma sem skipað er þeim Herdísi Önnu Jónsdóttur víóluleikara og Steef van Ousterhout slagverksleikara kemur nú fram í fyrsta sinn á Reykholtshátíð og mun leiða áheyrendur um ævintýraheim tónlistar á fjölskyldutónleikum á fyrri laugardagstónleikum hátíðarinnar.
Fiðluleikararnir Joaquín Páll Palomares og Pétur Björnsson, víóluleikararnir Þórunn Ósk Marinósdóttir og Guðbjartur Hákonarson – sem einnig kemur nú í fyrsta sinn fram á hátíðinni og sellistarnir Sigurður Bjarki Gunnarsson og Sigurgeir Agnarsson koma fram í mismunandi hljóðfærasamsetningum í fölbreyttri efnisskrá sem verður gerð opinber 26. júní en þá hefst almenn miðasala.
Listrænir stjórnendur hátíðarinnar eru Þórunn Ósk Marinósdóttir og Sigurður Bjarki Gunnarsson og er þetta sjötta hátíðin sem þau stýra.
Sala hátíðarpassa hefst kl. 12, föstudaginn 5. júní næstkomandi. Hlekkur verður á miðasölu á heimasíðu hátíðarinnar og einnig er hægt að kaupa hátíðarpassa og miða beint á Tix.is.
Hátíðarpassinn kostar 11.500 kr. og vakin er athygli á að takmarkaður fjöldi passa verður í sölu.
Verð á stökum aðgöngumiðum er 4.500 kr. en miðar á fjölskyldutónleikana kosta 1.000 kr.
Sjáumst á Reykholtshátíð!