Hin árlega Sturluhátíð – kennd við sagnaritarann Sturlu Þórðarson, sem bjó á Staðarhóli, Saurbæ í Dölum – verður haldin að Laugum í Sælingsdal, laugardaginn 11. júlí nk.
Þau sem það kjósa, hittast kl. 14 þennan dag á Staðarhóli þar sem við svipumst um og fræðumst um Sturlu og afrek hans.
Hin formlega dagskrá hefst kl 15 í íþróttahúsinu að Laugum í Sælingsdal.
DAGSKRÁ:
Úlfar Bragason, prófessor emiritus:
Fróður maður og vitur: Sturla Þórðarson (1214 – 1284)
Fróður maður og vitur: Sturla Þórðarson (1214 – 1284)
Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir, íslenskufræðingur og verðlaunahafi Hagþenkis 2026:
Skopast að lífi breiðfirskra aðalskvenna á 15. öld — Rímurnar af Mábil sterku.
Skopast að lífi breiðfirskra aðalskvenna á 15. öld — Rímurnar af Mábil sterku.
Torfi Tulinius, prófessor:
Sálirnar og beinin. Um Sturlu Þórðarson og Grettis sögu.
Sálirnar og beinin. Um Sturlu Þórðarson og Grettis sögu.
Soffía Meldal Kristjánsdóttir syngur við undirleik Benóní Meldal Kristjánssonar.
Aðgangur að hátíðinni er ókeypis eins og jafnan áður. Sturlufélagið býður upp á kaffiveitingar að vanda.
Aðalfundur Sturlufélagsins verður haldinn að lokinni formlegri dagskrá hátíðarinnar.