Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026 – samráð við ferðaþjónustu og landeigendur á Vesturlandi
Miðvikudaginn 12. ágúst 2026 mun almyrkvi á sólu ganga yfir vesturhluta Íslands og sjást frá öllum sveitarfélögum á Vesturlandi. Gera má ráð fyrir mikilli aðsókn gesta á svæðið til að upplifa þennan sjaldséða atburð og því mikilvægt að allir sem málið varðar taki þátt í undirbúningi og samráði.
Markaðsstofa Vesturlands – áfangastaðastofa heldur utan um samráðsvettvang Vesturlands vegna almyrkva, þar sem hagaðilar vinna saman að því að skapa yfirsýn yfir aðstöðu og mögulegar aðgerðir á svæðinu. Markmiðið er að stuðla að góðum undirbúningi fyrir atburðinn, auk þess að miðla upplýsingum og kynna þá aðstöðu og upplifunarmöguleika á Vesturlandi sem gestir sem koma til að sjá almyrkvann geta nýtt sér. Hvetjum alla hlutaðeigandi til að taka þátt í þessu með okkur:
*Samráð við ferðaþjónustuaðila og landeigendur
Mikilvægt er að ná til ferðaþjónustuaðila og landeigenda sem kunna að hafa aðstöðu eða áhuga á að taka á móti gestum í tengslum við almyrkvann, til dæmis með:
- bílastæðum
- tjaldsvæðum
- aðstöðu fyrir hópa
- annarri þjónustu
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í slíku samráði eru hvattir til að skrá sig hér:
👉 Skráning í samráð um mögulega aðstöðu eða þjónustu vegna almyrkva
LINKUR Á SKRÁNINGARFORM
Skráningin er ekki bindandi, heldur aðeins til að skrá áhuga á að ræða möguleika á nýtingu á aðstöðu eða landi. Markaðsstofa Vesturlands mun í framhaldi hafa samband við þá aðila sem skrá sig til frekara samráðs.
*Opinn upplýsingafundur á Teams – 12. mars
Til að kynna stöðu undirbúnings og ræða samstarf vegna almyrkvans verður haldinn opinn upplýsingafundur á Teams fimmtudaginn 12. mars.
Fundurinn er sérstaklega ætlaður ferðaþjónustuaðilum og landeigendum, en öllum sem hafa áhuga á málinu er velkomið að taka þátt.
📅 12. mars 2026 kl. 14:00–15:00
💻 Fundarform: Teams
👉 Skráning á upplýsingafundinn
LINKUR Á SKRÁNINGARFORM
Teams-tengill á fundinn verður sendur til þeirra sem skrá sig.