Almyrkvi á Vesturlandi 12.ágúst 2026 - undirbúningur og tækifæri
Undirbúningur vegna þessa atburðar er í gangi í samstarfi sveitarfélaga, viðbragðsaðila og annarra hagaðila. Markmið þeirrar vinnu er að tryggja góða yfirsýn, öruggt skipulag og skýra upplýsingagjöf til íbúa og gesta.
Við hvetjum aðila á Vesturlandi til að leggja sitt af mörkum í gestamóttöku, eftir því sem tækifæri er til, t.d. með framboði á tímabundinni þjónustu, sölu eða aðstöðu þessa daga.
Markmiðið er að stuðla að góðri móttöku gesta á Vesturlandi, þar sem gera má ráð fyrir verulegri fjölgun gesta og auknu álagi á innviði og þjónustu. Reiknað er með að þörf verði á auknu framboði á vörum og þjónustu til að mæta eftirspurn þessa daga, samhliða hefðbundinni starfsemi þjónustuaðila á svæðinu.
👉 Þetta felur í sér tækifæri fyrir starfandi þjónustuaðila, heimafólk, félagasamtök og góðgerðarfélög til að auka þjónustu og afla tekna, t.d. með tímabundinni „pop-up“ sölu í tengslum við atburðinn – hvort sem er sem viðbót við núverandi starfsemi eða tímabundin starfsemi.
Slíkt getur:
- aukið framboð á mat, þjónustu og aðstöðu
- dreift álagi betur um svæðið
- skilað ávinningi inn í nærsamfélagið
👉 Mikilvægt er að senda fyrirspurn eða umsókn um starfsleyfi vegna tímabundinnar starfsemi til viðkomandi sveitarfélags, þar sem skipulagsmál, aðgengi og umferðastýring eru á þeirra forræði.
👉 Aðilar sem vilja taka þátt geta einnig skráð sig í samráð og fengið ráðgjöf hjá Markaðsstofu Vesturlands varðandi mögulega aðstöðu og þjónustu:
Skráning í samráð og fengið ráðgjöf
Nánari upplýsingar um undirbúning á Vesturlandi má finna hér:
Samráðsvettvangur um sólmyrkva