Umferðarstýring á Vesturlandi vegna almyrkvans 12. ágúst
Umferðarstýring hefst á mismunandi tímum eftir svæðum, á bilinu kl. 08:00–11:00, og á sumum vegköflum verður hámarkshraði lækkaður. Vegfarendur eru hvattir til að gera ráð fyrir lengri ferðatíma, fylgja leiðbeiningum lögreglu og umferðarstjóra og sýna öðrum vegfarendum tillitssemi.
Lögreglan bendir á að ökutæki sem lagt er ólöglega eða þannig að þau hindri umferð eða skapi hættu verða fjarlægð á kostnað eiganda.
Ef miklar tafir myndast við Hvalfjarðargöng gæti þurft að loka göngunum tímabundið og beina umferð um Hvalfjörð.
Umferðarstýring á Snæfellsnesi
Eftirfarandi breytingar verða í gildi á Snæfellsnesi:
- Útnesvegur (574): Einstefna verður frá Búðum að vegamótum við Öndverðarnesveg frá kl. 09:00.
- Öndverðarnesvegur (579): Vegurinn verður lokaður fyrir almenna umferð. Snæfellsjökulsþjóðgarður mun bjóða upp á rútuferðir fyrir þá sem vilja heimsækja svæðið.
- Jökulshálsvegur (570): Einstefna verður til norðurs frá Arnarstapa til Ólafsvíkur.
- Eysteinsleið: Verður lokuð.

Umferðarstýring í Dalabyggð
- Klofningsvegur (590): Einstefna verður á veginum frá 09:00.

Skipuleggðu ferðina vel
Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast með nýjustu upplýsingum frá Vegagerðinni og Lögreglunni áður en lagt er af stað. Þar sem búast má við miklum fjölda gesta á Vesturlandi er mikilvægt að skipuleggja ferðina með góðum fyrirvara, leggja eingöngu á þar til gerðum bílastæðum og virða umferðarstýringu og fyrirmæli á vettvangi.