Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Bubbi Bíóhöllini Akranesi

19. desember
Miðasala hefst, þriðjudaginn 2.sept kl:10:00 á tix.is.
Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra. Tónleikarnir í ár eru merkilegir fyrir þær sakir að tónleikaröðin fagnar 40 ára afmæli. Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985. Þótt staðsetning tónleikanna hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mætir með gítarinn og perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.
Til hamingju, Bubbi Morthens, með þessi merku tímamót og kæru gestir, eigið gott kvöld

GPS punktar

N64° 18' 54.851" W22° 5' 31.446"