Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Jólatónleikar Hljómlistarfélags Borgarfjarðar 2023

10. desember kl. 17:00-22:00

Upplýsingar um verð

4000
Hinir árlegu jólatónleikar Hljómlistarfélags Borgarfjarðar verða haldnir í 7. sinn sunnudaginn 10. desember nk.

Tvennir tónleikar verða í boði; síðdegistónleikar og kvöldtónleikar. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 17:00 og hinir síðari kl. 20:00.

Hljómsveit leikur og syngur ásamt góðum gestum.
Aðalgestur er enginn annar en Daníel Ágúst. Daníel Ágúst þekkja flestir en hann er meðal annars meðlimur hljómsveitanna Nýdönsk og GusGus ásamt því að vera Idol dómari.
 
Söngvarar:
Þóra Sif Svansdóttir
Eiríkur Jónsson
Edda María Jónsdóttir
Jón Þór Sigmundsson
Ísfold Rán Grétarsdóttir
Ágúst Bernhardsson Linn
Örvar Bessason
Borgarfjarðardætur: Ásta Marý Stefánsdóttir, Birna Kristín Ásbjörnsdóttir, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir og Steinunn Þorvaldsdóttir
Hljómsveit:
Gunnar Reynir Þorsteinsson
Jón Ingimundarson
Ómar Örn Arnarson
Pétur Kolbeinsson
 
Hljóðmaður: Baldvin A B Aalen
 
Miðasala fer fram í Brúartorgi Borgarnesi og er miðaverð 4.000 kr.
 
Við hlökkum til að sjá ykkur!

GPS punktar

N64° 32' 30.449" W21° 54' 44.349"

Staðsetning

Hjálmaklettur Menningarhús