Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Myrkur um miðjan dag – upplifðu stig almyrkvans

Myrkur um miðjan dag og glóandi, gylltur hjúpur umhverfis sólina. Fyrir utan norðurljós eru flestir himneskir viðburðir hægfara, en sólmyrkvi er síbreytilegt sjónarspil sem þróast jafnt og þétt þar til hann nær sínum stórbrotna hápunkti – almyrkvanum.

Almyrkvi á sólu skiptist í nokkur stig og því betur sem þú þekkir þau, þeim mun meira færðu út úr upplifuninni. Með því að vita hvað á að horfa eftir tekurðu eftir smáatriðum og breytingum sem annars gætu auðveldlega farið fram hjá þér.

Við mælum með því að fylgjast með heimasíðu Stjörnu-Sævars.