Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hvernig höldum við í gott fólk? Menntamorgunn ferðaþjónustunnar – 14. október kl. 11:00–12:00.

Gott starfsfólk er gulls ígildi – en hvað fær það til að vera áfram og hvað fær fyrrverandi starfsfólk til að snúa aftur? Menntamorgunn ferðaþjónustunnar fer fram 14. október kl. 11:00–12:00 í beinu streymi. Á fyrsta Menntamorgni vetrarins verður sjónum beint að fólkinu okkar og því hvernig hægt er að skapa vinnustaði þar sem starfsfólk vill vera, vaxa og leggja sitt af mörkum.

Kynningarfundur vegna Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða 8. október

Ferðamálastofa heldur upplýsingafund á Teams fimmtudaginn 8. október kl. 13–15 fyrir væntanlega umsækjendur í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Umsóknarfrestur í sjóðinn er til kl. 13 þann 27. október 2026.

Skemmtiferðaskip hafa áhrif víða um Snæfellsnes

Ný greining Teya á kortaveltu erlendra ferðamanna sýnir að komur skemmtiferðaskipa til Grundarfjarðar hafa umtalsverð áhrif á verslun og þjónustu, og áhrifin ná langt út fyrir hafnarbæinn sjálfan.

Ferðaþjónustan á Sturlureykjum í Landanum

Auðkennandi fjöll Vesturlands – Skessuhorn

Tignarlegir og oddhvassir klettatindar Skessuhorns rísa úr fjalllendi Borgarfjarðar og mynda sterka og áberandi skuggamynd. Dökkir klettar, brattar hlíðar og óregluleg tindalína gefa fjallinu hrikalegan svip og gera það að einu sérstæðasta kennileiti svæðisins.

Íslenska lopapeysan: Hlý saga sem á vel heima á Vesturlandi

Fáar flíkur eru jafn nátengdar íslenskri þjóðarsál og lopapeysan. Hún er ekki aðeins peysa heldur tákn um íslenska náttúru, handverk og þá seiglu sem hefur einkennt lífið í landinu um aldir. Þótt erfitt sé að benda á einn höfund eða tiltekinn upphafsdag hefur lopapeysan þróast samhliða sögu þjóðarinnar og orðið eitt þekktasta tákn Íslands.
Kristján Guðmundsson Markaðsstofu Vesturlands

Vesturland kynnt á Vestnorden í Grænlandi

Tækifæri til uppbyggingar á Vesturlandi með Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur opnað fyrir umsóknir um styrki fyrir árið 2027 og geta sveitarfélög, fyrirtæki og aðrir rekstraraðilar ferðamannastaða nú sótt um fjármögnun til uppbyggingar og þróunar ferðamannainnviða. Umsóknarfrestur rennur út klukkan 13:00 þann 27. október 2026.

Auðkennandi fjöll á Vesturlandi - Hafnarfjall

Gegnt Borgarnesi rís Hafnarfjall snarbratt úr landslaginu og nær allt að sjó. Brattar, skriðurunnar hlíðar, djúpir dalir og fjölbreyttir tindar gefa því hrjúft en jafnframt formfagurt yfirbragð. Hafnarfjall er því ekki aðeins áberandi náttúrufyrirbæri heldur eitt af helstu kennileitum Hvalfjarðar og Borgarfjarðar.

Vertu með í samtalinu um markaðsstarf ferðaþjónustunnar

Íslandsstofa býður fyrirtækjum í ferðaþjónustu til fjarrýnifundar um markaðsstarf ferðaþjónustunnar og verkefnið Ferðaþjónusta til framtíðar, mánudaginn 28. september kl. 13:00–14:00.

Dagur Snorra Sturlusonar

Á hverju ári er Dagur Snorra Sturlusonar haldinn í kringum ártíð hans, 23. september, til að heiðra minningu eins merkasta manns íslenskrar sögu. Snorri var skáld, sagnaritari, höfðingi og stjórnmálamaður sem skildi eftir sig verk sem hafa haft ómetanlegt gildi fyrir skilning okkar á sögu, menningu og goðafræði Norðurlanda. Fáir einstaklingar hafa haft jafn djúpstæð áhrif á varðveislu norræns menningararfs og hann.

MICE-ferðaþjónusta skilaði 33 milljörðum í tekjur árið 2025

Um 80 þúsund erlendir ferðamenn komu til Íslands árið 2025 gagngert til að sækja ráðstefnur, viðburði eða fara í hvataferðir. Þeir skiluðu um 33 milljörðum króna í tekjur, samkvæmt nýrri greiningu KPMG fyrir Íslandsstofu. Tekjur af svokallaðri MICE-ferðaþjónustu, sem nær yfir ráðstefnur, fundi, hvataferðir og viðburði (e. Meetings, Incentives, Conferences and Events), námu um 33 milljörðum króna hér á landi á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýrri greiningu KPMG á umfangi og efnahagslegum áhrifum greinarinnar.