Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ný flugleið frá Portúgal opnar möguleg tækifæri fyrir Vesturland

Portúgalska flugfélagið TAP Air hefur tilkynnt að það muni hefja beint áætlunarflug milli Keflavíkurflugvallar og Lissabon vorið 2027. Flogið verður þrisvar í viku frá 1. apríl til 28. október og mun leiðin jafnframt bjóða upp á greiðar tengingar við fjölmarga áfangastaði í Suður-Evrópu, Afríku og Suður-Ameríku.

Fossar Vesturlands - Glymur

Fyrir þá sem sækjast eftir stórbrotinni náttúruupplifun er fátt sem jafnast á við heimsókn að Glymi. Fossinn er staðsettur í Botnsdal í Hvalfirði og fellur 198 metra niður í þröngt og hrikalegt gljúfur. Hann var lengi talinn hæsti foss Íslands og er enn í dag einn glæsilegasti foss landsins. Vatnið kemur úr Hvalvatni, einu dýpsta stöðuvatni landsins, og rennur síðan í gegnum Botnsá áður en það steypist fram af fossbrúninni.

Hlíðartúnshúsin í Borgarnesi – saga íslensks samfélags í húsunum

Við Borgarbraut í Borgarnesi standa Hlíðartúnshúsin sem áþreifanlegur vitnisburður um mikilvægt tímabil í íslenskri byggðasögu. Húsin eru merkar minjar um búskap í þéttbýli á fyrri hluta 20. aldar og segja okkur sögu um þá tíma þegar mörkin milli sveita og þéttbýlis voru ekki jafn skýr og þau eru í dag.

Vesturland áfram meðal mest heimsóttu landshluta landsins

Ný samantekt Ferðamálastofu, Ferðaþjónusta í tölum – sumar 2026, sýnir að ferðamannasumarið 2026 var það næstfjölmennasta frá upphafi mælinga þrátt fyrir lítilsháttar fækkun erlendra ferðamanna milli ára. Alls voru um 830 þúsund brottfarir erlendra ferðamanna skráðar um Keflavíkurflugvöll yfir sumarmánuðina júní til ágúst, sem er 2,3% fækkun frá sumrinu 2025.

Íslenskir prjónarar taka við af gervigreind á fundum

Íslandsstofa hefur hleypt af stokkunum nýrri og óvenjulegri kynningarherferð fyrir áfangastaðinn Ísland undir heitinu AI Knittakers (Authentic Icelandic Knittakers). Markmið herferðarinnar er að vekja athygli á Íslandi sem vellíðunaráfangastað með því að bjóða fólki að senda íslenska prjónara í sinn stað á fjarfundi.

Beint flug frá Kína gæti styrkt ferðaþjónustu um allt Vesturland

Gestakomur ferðamanna frá Kína á Vesturlandi hafa meira en tvöfaldast á aðeins tveimur árum og með nýrri flugtengingu milli Peking og Keflavíkur opnast enn frekari tækifæri fyrir ferðaþjónustufyrirtæki í landshlutanum.

Ný alþjóðleg Visit Iceland herferð opnar tækifæri fyrir ferðaþjónustufyrirtæki

Íslensk ferðaþjónustufyrirtæki geta nú tekið þátt í nýrri alþjóðlegri markaðsherferð Visit Iceland, sem fer í loftið síðar í október. Herferðin er unnin af Íslandsstofu í samstarfi við markaðsstofur landshlutanna og SAF og beinist að mörkuðum í Bretlandi og Bandaríkjunum.

Fossar Vesturlands - Hraunfossar

Ef nefna ætti eina náttúruperlu sem flestir ferðalangar tengja við Borgarfjörð væru Hraunfossar líklega ofarlega á listanum. Fossarnir eru einstakt náttúrufyrirbæri þar sem tært lindarvatn streymir undan Hallmundarhrauni og fellur í Hvítá. Í stað þess að falla fram af háum klettum birtast fossarnir á löngum kafla undan hraunjaðrinum og skapa sjón sem á sér fáa líka á Íslandi. Hraunfossar eru ásamt Barnafossi meðal vinsælustu áningarstaða Vesturlands og hafa verið friðlýstir sem náttúruvætti frá árinu 1987.

Mótvindur í ferðaþjónustu ræddur á fjölmennum fundi í Borgarnesi

„Mótvindur – eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustu?“ var yfirskrift fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi sem fram fór í Hjálmakletti í Borgarnesi 22. október. Fundurinn var haldinn í samstarfi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Vesturlands, Markaðsstofu Vestfjarða og Markaðsstofu Norðurlands og var vel sóttur af fulltrúum ferðaþjónustu, sveitarfélaga og stjórnmálaflokka.

Skráning hafin á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna

Ferðaþjónustuaðilar á Vesturlandi eru hvattir til að taka dagana 26.-28. janúar 2027 frá en þá fer Ferðaþjónustuvikan 2027 fram á höfuðborgarsvæðinu. Vikunni er ætlað að efla samstarf, fagmennsku og tengslamyndun innan ferðaþjónustunnar og koma þar saman aðilar víðs vegar af landinu. Að viðburðinum standa Markaðsstofur landshlutanna, Íslenski ferðaklasinn, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF), Ferðamálastofa og Íslandsstofa.

Mótvindur – Fundur um stöðu og framtíð ferðaþjónustu í Norðvesturkjördæmi

Almyrkvinn sýndi styrk samstarfs á Vesturlandi

Almyrkvinn 12. ágúst var stórt verkefni sem kallaði á náið samstarf stjórnvalda, sveitarfélaga, viðbragðsaðila, ferðaþjónustu og annarra hagaðila. Vesturland og sérstaklega Snæfellsnes voru meðal þeirra svæða þar sem búist var við miklum fjölda gesta.